<$BlogRSDUrl$>

föstudagur, október 24, 2003

Ég veit ekki hvort það er skapast einhver hefð fyrir föstudagspistlum hér á síðunni. Ástæðan er kannski helst sú að ég er ekki í skólanum á föstudögum og á þá auðvitað að vera lesa en skemmtilegra að blogga í staðinn.

Sjónvarpsviðtalið sem ég talaði um í síðustu færslu var sýnt á mánudaginn og sama dag var líka viðtal við mig í Kastljósinu. Ég held að þetta hafi gengi ágætlega, alla vega fékk ég fjölmargar hringingar morguninn eftir frá aðilum sem vilja kaupa ritgerðina. Fólk virðist því trúa því að ég hafi eitthvað vit á þessu. Já svona getur sjónvarpið blekkt.

Annars ber það hæst að það er útskrift á morgun og við Þyrí erum boðin í fjölmargar veislur svo það verður nóg að gera og sjálfsagt mikið djammað og drukkið. Verst að ég þarf að vinna eitthvað leiðinda verkefni í rekstrarhagfræði áður en af því verður. Þó ég sé að alltaf að kvarta yfir einhverjum leiðinda verkefnum þá megið þið ekki halda að námið sé tóm leiðindi. Það er bara ágætt að fá útrás hér á síðunni. Ég er líka að vinna skemmtileg verkefni. Skila t.d. í gær hugmynd að rannsókn í Rannsóknaraðferðum og hver veit nema að þetta geti þróast í lokaverkefni. Hugmyndin er að kafa ofan í kenningar og rannsóknir Ronald Ingelhart um póstmodernisma. Rannsóknir hans benda til þess að Íslendingar hafi í minna mæli tileinkað sér póstmodernísk gildi en aðrir Vesturlandabúar. Ég hef reyndar ekki trú á því og tel þörf á því að það verði að kafa dýpra til að finna hin póstmódernísku gildi Íslendinga en Ingelhart gerir. En eins og þið sjáið þá er þetta brýnt rannsóknarefni.

Góða helgi!

föstudagur, október 17, 2003

Stjórnun, sjónvarpið og fjárlagagerð!

Eyddi vikunni í að gera verkefni í Opinberri stjórnsýslu um gagnsemi líkinga til skilja stofnanir. Verkefni fólst í því að máta nokkrar líkingar á stofnum sem ég þekki vel. Vandinn var sá að það er varla hægt að segja að ég hafi unnið hjá opinberra stofnun svo þetta var nokkuð snúið. Félagsvísindadeild varð fyrir valinu enda hef ég verið nemandi þar lengur en ég kæri mig um að muna og hef meiri segja verið titlaður stundakennari við deildina. Gallinn við þetta val er að kennarinn sem fer yfir verkefnið þekkir deildina mun betur en ég og spottar það strax þegar að ég byrja bulla. Annars ganga þessi stjórnunarfræði alltof langt í að notast við líkingar. Öll þessi frægu stjórnunargúru hamast við upphugsa einhverjar sniðugar líkingar og ég hef á tilfinningunni að líkingin sé markmið frekar en verkfæri til að skilja fræðin. Svo ég haldi áfram að vera í kasti yfir stjórnunarfræðum þá set ég spurningarmerki við það hvort þetta séu einhver fræði. Virtir „fræðimenn“ í stjórnun virðast komast upp með það að setja fram alls konar kenningar og hugmyndir án þess að það liggi fyrir rannsóknir sem styðja ágæti þeirra. Tala nú ekki um ef þeir koma með sniðuga líkingu með trúi fólk þessu eins og nýju neti og bækurnar þeirra seljast í milljónum eintaka. En alla vega er einu súrasta verkefni sem ég hef unnið í HÍ lokið en býst samt ekki við að fá nein verðlaun enda endaði ég ritgerðina á því að lýsa frati í þessa líkingaáráttu stjórnunarfræðanna.

Sjónvarpið tók viðtal við mig í gær um efni ritgerðarinnar. Ég vona að ég hafi hikstað einhverju gáfulegu upp úr mér, efast þó um það. Tökumaðurinn lagði svo mikla áherslu á að ég stæði á einhverju ímynduðu X-i að ég var að uppteknari af því en því sem ég sagði. Ef viðtalið kemur illa út get ég huggað mig það að ritgerðin er góð (fékk níu).

Helgarplanið er að lesa bókina Úr digrum sjóði sem er bók eftir Gunnar Helga um fjárlagagerð á Íslandi. Þó efnið hljómi ekki spennandi er ég reyndar viss um að bókin er athyglisverð lesning enda mæla þeir sem hafa lesið með henni. Læt ykkur vita! Kannski að ég skrifi um hana á síðuna Á náttborðinu enda ansi langt síðan að nokkuð birtist þar.

Góða helgi.

mánudagur, október 13, 2003

Solla er búin að uppfæra dagbókina sína og setja inn fullt af nýjum myndum. Kíkið á það og endilega kvittið í gestabókina. Þá verður hún svo glöð!

sunnudagur, október 12, 2003

Mæli með að Arnar lesi þessa færslu!

laugardagur, október 11, 2003

Tvö-núll eftir dómaraskandal. Þetta er agalegt!

Þjóðverjar búnir að skora! Er þetta búið?

föstudagur, október 10, 2003

Þessi síða er snilld og sérstaklega myndin af Arnari.

Morgunblaðið vitnar í þessa færslu í Dagbók Ernu og Mödda í dag. Ég vissi alltaf að ritsnilld Marðar yrði gerð ódauðleg einhvern daginn!

fimmtudagur, október 09, 2003

Arnari, Binna og Mæju hefur ekki leiðst í Bristol ef marka má þessa mynd.

Annars er ég í tíma í Opinberri stjórnsýslu og hér eru heitar umræður um ágæti aðstoðarmanna ráðherra. Flestir eru nú sammála um að þeir eigi rétt á sér en spurningin er hvort þeir eiga að vera sérfræðingar á viðkomandi sviðið eða hvort þetta eigi að vera pólitísk uppeldisstöð. Hér takast á allir embættismennirnir í hópnum gegn aðstoðarmanni iðnaðarráðherra. Ég veit ekki hvaða skoðun ég á að hafa á þessu. Þetta er eina staðan sem ráðherra getur ráðið í og ég held að hann verðir að fá að ráðstafa henni að vild. Ráðherra er auðvitað með fullt að sérfræðingum í ráðuneytinu og þarf kannski fyrst og fremst pólitíska ráðgjöf. Það er hætta á að ef aðstoðarmaðurinn er sérfræðingur á viðkomandi sviði að hann verði bara einn að embættismönnunum.
En hvað segja þeir aðstoðamenn sem ég þekki um málið?

Rosalega er ég latur bloggari!

föstudagur, október 03, 2003

Einar og Þórlaug eignuðust stóran og myndarlegan strák í morgun. Við hér á Eggertsgötunnu óskum litlu fjölskyldunni til hamingju og velfarnaðar í framtíðinni.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?