<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, desember 06, 2006

Nýjir og gamlir þingmenn

Nú þegar að öllum prófkjörum er lokið er að komast mynd flesta framboðslista fyrir vorið. Reyndar eru ekki allir listar ljósir en hjá stærstu flokkunum Sjálfstæðisflokki og Samfylkingu virðist röð efstu manna orðin ljós. Ljóst er að fjölmargir þingmenn hverfa af þingi í vor, sumir af sjálfsdáðum en aðrir af því að þeir voru felldir í prófkjöri eða flokkar þeirra ná ekki tilskildu fylgi. Því er ekki úr vegi að skoða hvaða þingmenn sem sækjast eftir áframhaldandi setu á Alþingi gætu orðið atvinnulausir í vor. Ef tekið er mið af síðustu Gallup könnun gætu eftirfarandi þingmenn þurft að leita sér að nýrri vinnu eftir kosningar.

Anna Kristín Gunnarsdóttir
Ásta Möller (fer eftir kjördæmi formanns)
Birgir Ármannsson
Drífa Hjartardóttir
Guðjón Hjörleifsson
Guðjón Ólafur Jónsson
Guðrún Ögmundsdóttir
Gunnar Örlygsson
Hjálmar Árnason
Jón Gunnarsson
Jónína Bjartmarz
Kristinn H. Gunnarsson
Mörður Árnason (fer eftir kjördæmi formanns)
Sigurðir Kári Kristjánsson (fer eftir kjördæmi formanns)
Sigurjón Þórðarson (gæti flutt sig um kjördæmi)
Sigurrós Þorgrímsdóttir
Siv Friðleifsdóttir
Sæunn Stefánsdóttir
Valdimar Leó Friðriksson

Alls eru þetta 19 þingmenn sem annað hvort er ljóst að falla af þingi eða eru í hættu skv. nýjustu könnun. Svo má ekki gleyma að 9 þingmenn ætla hætta sjálfviljugir.

Þá er ekki úr vegi að skoða hvaða nöfn þjóðin gæti þurft að læra á næsta kjörtímabili ef kosningarnar verða í takt við könnun Gallup.

Atli Gíslason (V)
Auður Lilja Erlingsdóttir (V)
Álfheiður Ingadóttir (V)
Ármann Kr. Ólafsson (D)
Árni Johnsen (D)
Árni Páll Árnason (S)
Árni Þór Sigurðsson (V)
Björk Guðjónsdóttir (D)
Gestur Svavarsson (V)
Guðbjartur Hannesson (S)
Guðfinna Bjarnadóttir (D)
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir (V)
Gunnar Svavarsson (S)
Herdís Á. Sæmundardóttir (B)
Illugi Gunnarsson (D)
Jón Gunnarsson (D)
Katrín Jakobsdóttir (V)
Kristján Þór Júlíusson (D)
Ólöf Nordal (D)
Paul Nikolov (V)
Ragnheiður Elín Árnadóttir (D)
Unnur Brá Konráðsdóttir (D)
þingmaður í NV (V)
þingmaður í RN (F)
þingmaður í RN (F)
þingmaður í RS (F)
þingmaður í NA (F)
þingmaður í S (F)

Ef þetta gengur eftir hefur líklega sjaldan eða aldrei orðið jafn miklar breytingar á þingliðinu.

Comments:
Takk fyrir skemmtilegar pælingar. Nú er ég enginn stjórnmálafræðingur, en eitt kemur mér spánskt fyrir sjónir hér. Þú reiknar Atla Gíslason ekki inn fyrir VG, en hann er með 13% í kjördæminu skv. þjóðarpúlsinum. Frjálslyndir eru með 8%, en þú reiknar ekki með að Magnús Þór, þingmaður þeirra þar, detti út - og bætir meira að segja við þingmanni Frjálslyndra í S-kjördæmi. Á hverju byggir þú þetta?

Og bæðevei, hann heitir Paul Nikolov - ekki Nicolov.
 
Skil ég það svo að Frjálslyndi flokkurinn eigi von á allmörgum þingmönnum þar sem stendur "þingmaður í xx"? Meira að segja tveimur í RN?

O bæðevei, hún heitir Ólöf Nordal...
 
Takk fyrir ábendingarnar, að sjálfsögðu er Atli inni fyrir VG í Suðurkjördæmi. Þar sem stendur þingmaður e-ð er verið að gefa til kynna kjördæmi og flokk sem þingmaðurinn er í. Frjálslyndir eiga von á þingmönnum í þessum kjördæmum ef marka má Gallup könnunina en þar sem ekki búið að stilla upp listum er ekki hægt að birta nein nöfn.

Einar Mar
 
Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?